Fyrirtæki

Íslenskt staðfest vekur athygli fjölmiðla 

Það er ljóst, af viðbrögðunum að dæma, að beðið hefur verið eftir upprunamerki matvara og blóma hér á landi í langan tíma. Fjölmargir fjölmiðlar hérlendis hafa sýnt merkinu áhuga og sama má segja um neytendur og framleiðendur sem hafa hug á að nota merkið á sínum vörum. Hér má sjá yfirlit yfir fréttir í íslenskum […]

Íslenskt staðfest vekur athygli fjölmiðla  Read More »

IS-kynning

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, afhjúpaði Íslenskt staðfest.

Nýtt íslenskt upprunamerki fyrir matvörur og blóm við hátíðlega athöfn á veitingastaðnum Hnoss í Hörpu. Tilgangur merkisins er að einfalda neytendum að velja íslenskar vörur. Auka sýnileika og markaðshlutdeild íslenskra afurða, tengja neytendur betur við frumframleiðendur og fræða þá um kosti íslenskra matvæla og verslunar. Upprunamerki fyrir matvæli og blóm Íslenskt staðfest er nýtt upprunamerki

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, afhjúpaði Íslenskt staðfest. Read More »

Kaupvilji eykst með upprunamerktum vörum

Norðmenn, með upprunamerkið Nyt Norge, og Svíar með Från Sverige, framkvæma reglulega kannanir hjá neytendum á viðhorfi þeirra til uppruna matvöru, mikilvægi merkinga matvara og þekkingu ásamt trausti á upprunamerkjum landanna. Áhugavert er að sjá úr þessum könnunum hversu mikið traust neytendur hafa til merkjanna og mikilvægi fyrir þá að geta haft öruggt og upplýst

Kaupvilji eykst með upprunamerktum vörum Read More »

Atvinnuvegaráðuneytið og BÍ semja um nýtt íslenskt búvörumerki

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, undirrituðu í dag samning um gerð íslensks búvörumerkis. Um er að ræða nýtt valfrjálst upprunamerki fyrir íslenskar búvörur. Því er ætlað að afmarka með skýrari hætti innlenda landbúnaðarframleiðslu á heimamarkaði og bæta þar með upplýsingagjöf til neytenda. Með því verður sérstaða íslenskra búvara betur tryggð en sambærileg merki eru til í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.  Mikið

Atvinnuvegaráðuneytið og BÍ semja um nýtt íslenskt búvörumerki Read More »

Norrænar fyrirmyndir

Íslenskt staðfest er unnið eftir fordæmum Finna, Norðmanna og Svía sem hafa öll eigin matvælamerki til að staðfesta uppruna vara. Finnarnir réðu á vaðið árið 1993 með merkinu Gott från Finland en 16 árum síðar kynntu Norðmenn sitt merki, Nyt Norge og Svíar fylgdu í kjölfarið með Från Sverige árið 2016. Hjá Svíunum er merkið

Norrænar fyrirmyndir Read More »

Betri merkingar matvæla

Ákall um betri merkingar matvæla Árið 2020 kom út skýrsla samráðshóps, sem skipaður var af þáverandi atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, um betri merkingar matvæla. Markmið með vinnunni var að tryggja betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif matvæla. Jafnframt var hlutverk hópsins að finna leiðir til að upplýsa neytendur og fyrirtæki betur

Betri merkingar matvæla Read More »

Samkomulag um betri merkingar matvæla

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og fulltrúar Bændasamtaka Íslands, Neytendasamtakanna, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka iðnaðarins undirrituðu í dag samkomulag um að gera gangskör í því að bæta merkingar á matvælum. Með samstarfinu er markmiðið að tryggja betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif matvæla. Átaksverkefni og auknar upplýsingar Skipaður verður samráðshópur

Samkomulag um betri merkingar matvæla Read More »