Kjarnafæði Norðlenska verður hluti af Íslenskt staðfest hópnum
Kjarnafæði Norðlenska hefur ákveðið að taka upp merkið Íslenskt staðfest og bætist þar með í hóp fyrirtækja sem leggja áherslu á að uppruni hráefna og framleiðsla séu íslensk.
Með þátttöku sinni í Íslenskt staðfest sýnir Kjarnafæði Norðlenska skýran vilja til að veita neytendum áreiðanlegar upplýsingar um uppruna matvæla og styðja við íslenska matvælaframleiðslu.
„Það er afar mikilvægt fyrir Íslenskt staðfest að fá öflug fyrirtæki eins og Kjarnafæði Norðlenska í hópinn og þátttaka þeirra styrkir merkið enn frekar“ segir Herdís Magna Gunnarsdóttir, formaður stjórnar Íslenskt staðfest.
Íslenskt staðfest tryggir neytendum að varan sé íslensk að uppruna og gæðum.