Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og fulltrúar Bændasamtaka Íslands, Neytendasamtakanna, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka iðnaðarins undirrituðu í dag samkomulag um að gera gangskör í því að bæta merkingar á matvælum. Með samstarfinu er markmiðið að tryggja betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif matvæla.
Átaksverkefni og auknar upplýsingar
Skipaður verður samráðshópur með fulltrúum neytenda, bænda og verslunar og er hlutverk hans að ráðast í átaksverkefni um merkingar og hvernig betur megi upplýsa neytendur og fyrirtæki um réttindi og skyldur á skýran og einfaldan hátt, í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. Verkefnið er tímabundið í eitt ár og að þeim tíma liðnum verður árangurinn metinn og ákvörðun tekin um framhaldið.
Neytendur vilja bættar merkingar
Árið 2014 var settur samstarfshópur á laggirnar sem hafði það hlutverk að bæta upprunamerkingar matvæla. Í honum voru fulltrúar bænda, neytenda, ferðaþjónustunnar, Samtaka atvinnulífsins, Matvælastofnunar, Samtaka iðnaðarins og Samtaka verslunar og þjónustu. Í könnun sem gerð var á vegum hópsins árið 2014 var niðurstaðan sú að fjórir af hverjum fimm Íslendingum sögðu það skipta máli að upplýsingar um upprunaland væru á umbúðum matvæla. Síðan árið 2014 er mikið vatn runnið til sjávar og t.d. hafa nýjar reglur tekið gildi um upprunamerkingar á kjötvörum og fánalögin verið tekin til endurskoðunar. Þá er orðið algengara að veitingastaðir tilgreini uppruna á mat sem er í boði og hávær krafa er um það meðal neytenda að sama eigi við í mötuneytum og á öðrum stöðum sem selja tilbúinn mat.